Hugleiðing á jólanótt 2011

ABC skólanum barst þetta bréf frá einum af nemanda seinustu annar:

Sem ég sit hér á jólanótt í allsnægtum verður mér hugsað til barnanna í Kenya með kærleika í hjarta og langar mig að þakka ABC fyrir mig. Síðastliðið haust stóð ég á vissum krossgötum í lífi mínu og rakst þá á ABC skólann á netinu og ákvað í skyndi að skrá mig því stutt var í skólasetningu.

vettvangsferdUppw280Í raun vissi ég ekki hvað ég var að fara út í. Í byrjun voru vissar efasemdir í huga mér. Sérstaklega var ég hrædd um að þetta væru trúboðssamtök og sat sú hræðsla svolítið í mér til að byrja með. Mjög fljótlega varð mér ljóst að þessi samtök eru rekin eingöngu með kærleikann að leiðarljósi og öllum tekið opnum örmum. Þetta var mér mikill léttir og einnig fylltist ég von um að hið góða muni sigra að lokum því það er akkúrat svona sem mér finnst að sannkristið fólk ætti að vinna samkvæmt boðskapnum.

Í gegnum allan skólann skein í gegn að aðal markmiðið er að hjálpa börnunum á hvern þann hátt sem þeim hentar best á hverjum stað. Fyrirlesararnir voru hver öðrum betri. Ég var svo lánsöm að komast með í vettvangsferðina til Kenya og þar var það sama upp á teningnum; kærleikurinn skein alls staðar af fólkinu sem starfar fyrir ABC.

Ég er mjög þakklát að hafa fengið tækifæri að kynnast þessu starfi. Skólinn hefur gefið mér óendanlega mikið. Þetta var bæði mjög skemmtilegur og lærdómsríkur tími. Það er ekki annað hægt en að smitast af þessu góða fólki sem starfar þarna. Ég er betri manneskja á eftir. Kenyaferðin var alveg sér kapituli fyrir sig ævintýri uppá hvern dag þessar þrjár vikur og skipulagðir dagar frá morgni til kvölds. Allt gekk eins og í sögu.

Takk innilega fyrir mig, ég vona að mér auðnist að gefa eitthvað af mér til baka þó ekki sé nema brot af því sem ég fékk að reyna hjá ykkur.

ABC International school banner

Hugsjón ABC barnahjálpar er að:
  • Öll götubörn eignist heimili
  • Fátæk börn eigi kost á að ganga í skóla
  • Sjúk börn hafi aðgang að læknishjálp
Lesa meira...
Contact ABC Children's Aid International Senda fyrirspurn
ABC skólinn er hluti af starfi ABC barnahjálpar á Íslandi.

Póstlisti - skráðu netfang:

Vantar þig húsbúnað, bækur, föt, leikföng, prentara, skápa, rúm eða nánast hvað sem er? Kíktu í heimsókn á Nytjamarkaðinn :-)

abc_int

ABC skólinn er hluti af starfi ABC um allan heim.

Áhugavert á vefnum okkar: Frásögn frá KenýaABC skólinn á RÚVHugleiðing á Jólanótt 2011Ævintýralegt myndband frá Kenýa