Fólkið á bak við skólann

Skólastjórn

Í skólastjórn sitja 4 einstaklingar.

Skólastjórnin starfar undir hugsjón og stefnu ABC barnahjálpar. Hún sér um undirbúning og setningu skólans og tekur ákvörðun um hvernig megi best ná fram markmiðum skólans, s.s. með vali á viðfangsefni og kennurum.

Stjórnin metur árangur af skólastarfinu og ráðfærir sig við ráðgjafa skólans um tillögur til úrbóta og breytinga ef ástæða þykir til. Henni ber að vera vakandi yfir því að skólinn sé ætíð ABC barnahjálpar til sóma og framdráttar.

Í skólastjórn eru (frá vinstri):

stjornABCskolansw400

  • Bryndís Rut Stefánsdóttir, kennari og er í varastjórn ABC International.
  • Sigrún Jónsdóttir, ABC liði og frumkvöðull í fjáröflunarstarfi ABC
  • Guðrún Margrét Pálsdóttir, hjúkrunarfræðingur, stofnandi og formaður ABC barnahjálpar
  • Guðjón Ingi Guðmundsson, hefur starfað á vegum friðargæslunnar í Afganistan og á Unicef stöð í Súdan og er í varastjórn ABC International
  • Ágúst Valgarð Ólafsson, forritari hjá Austurneti og umsjónarmaður upplýsingatækni hjá ABC barnahjálp

Ráðgjafar

Ráðgjafar eru stjórn skólans innan handar um málefni sem tengjast skólanum, koma með faglega ráðgjöf varðandi námstilhögun, viðfangsefni og ýmislegt er tengist vettfangsferð nemenda. Ráðgjafar styðja við starfsemi skólans í samræmi við hugsjón og markmið ABC barnahjálpar og stuðla þannig að því að gera góðan skóla betri.

Ráðgjafar skólans eru:

  • Gísli Rafn Ólafsson, ráðgjafi hjá Microsoft á sviði náttúruhamfara og stjórnandi íslensku alþjóðabjörgunarsveitarinnar.
  • Guðfinna S. Bjarnadóttir, doktor í atferlis- og stjórnunarfræðum, fyrrverandi rektor HR og fv. alþingismaður.
  • Kjartan Jónsson, guðfræðingur og prestur, með mastersgráðu í kristniboðsfræðum og doktorsgráðu í mannfræði. Hann hefur starfað fyrir Kristniboðssambandið í 20 ár, þar af 12 ár í Kenýa og 5 ár fyrir KFUM.
  • Petrína Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla, félagsráðgjafi með mastersgráðu í alþjóðlegum friðarfræðum.
  • Ragnar Gunnarsson, framkvæmdastjóri Kristniboðssambandsins og ritstjóri Bjarma. Hann hefur starfað sem kristniboði, kennari, skólaprestur og framkvæmdastjóri KFUM og KFUK í Reykjavík. Hann hefur lokið prófi í guðfræði, sagnfræði, norsku og uppeldis- og kennslufræði.
  • Soffía Sigurgeirsdóttir, með BA í sálfræði og MSc í alþjóðasamskiptum.
  • Valgerður Sverrisdóttir, fv. alþingismaður og fv. utanríkisráðherra Íslands.

Kennarar og fyrirlesarar

Kennarar, fyrirlesarar og leiðbeinendur eru hópur fólks sem getur samsinnt sig hugsjón ABC barnahjálpar um að veita götubörnum þriðja heimsins von um bjartari framtíð með alhliða hjálp. Þeir búa yfir þekkingu og reynslu, hver á sínu sviði, sem gagnast nemendum skólans til undirbúnings fyrir hjálparstörf á vettvangi.

Skólateymi

Skólateymi ABC skólans skipar fólk sem vinnur að og styður skólastarfið með einum eða öðrum hætti, s.s. að greiða götur skólans og aðstoða við ýmislegt sem tengist skólastarfinu, vera nemendum innan handar og hjálpa til við helgarferðina. Í teyminu eru bæði ABC liðar og aðrir velunnarar ABC barnahjálpar.

Hér er hægt að sjá meira um þá einstaklinga sem koma að starfi ABC skólans.

ABC International school banner

Hugsjón ABC barnahjálpar er að:
  • Öll götubörn eignist heimili
  • Fátæk börn eigi kost á að ganga í skóla
  • Sjúk börn hafi aðgang að læknishjálp
Lesa meira...
Contact ABC Children's Aid International Senda fyrirspurn
ABC skólinn er hluti af starfi ABC barnahjálpar á Íslandi.

Póstlisti - skráðu netfang:

Vantar þig húsbúnað, bækur, föt, leikföng, prentara, skápa, rúm eða nánast hvað sem er? Kíktu í heimsókn á Nytjamarkaðinn :-)

abc_int

ABC skólinn er hluti af starfi ABC um allan heim.

Áhugavert á vefnum okkar: Frásögn frá KenýaABC skólinn á RÚVHugleiðing á Jólanótt 2011Ævintýralegt myndband frá Kenýa

. Полезная ссылка: software protection service - рекомендации. | Волосатые телки фото. Телки на пляже.