Ástundun og skólalok
Ástundun
Áhersla er lögð á ástundun og skólasókn. Námið er ekki hugsað sem fjarnám og nærvera allra skiptir lykilmáli. Skólastarfið fer fram í skólanum á skólatíma en er ekki rafrænt. Nemendur skulu leitast við að sækja alla tíma samkvæmt stundaskrá. Ákjósanlegt er að nemendur mæti fyrir settan tíma til að valda ekki truflun.
Skólasókn þarf að vera 80% til að nemandi fái viðurkenningu um að hafa lokið námi og að eiga kost á að fara í vettvangsferð.
Skólalok
Útskrift verður 25. mars 2011 og eftir vettvangsferð verða formleg skólaslit. Nemendur sem hafa lokið náminu með fullnægjandi skólasókn fá viðurkenningarskjal um að hafa lokið námi í ABC skólanum og fá titilinn ABC-liðar. Á skólaslitunum munu nemendur sem fóru í vettvangsferð standa að sameiginlegri kynningu ferðarinnar þar sem þeir greina frá reynslu sinni og upplifun í máli og myndum.
