Námsmat og ávinningur fyrir nemendur

Námsmat

Í námsferlinu öllu er lögð rík áhersla á að nemendur taki virkan þátt í náminu og leitist við að tileinka sér námsefnið eftir föngum. Fullnægjandi skólasókn er skilyrði þess að nemandi ljúki námi og fari í vettvangsferð. Lögð verða fyrir krossapróf úr völdum viðfangsefnum í lok námstímans til að skerpa á þekkingu nemenda og kanna hversu vel þeir hafa tileinkað sér námsefnið. Útkoma úr þeim hefur þó ekki áhrif á útskrift. Sömuleiðis verða lögð fyrir einstaklings- og hópverkefni í einstaka fögum. Ætlast er til að nemendur sýni fúsleika og góða þjónustulund í samstarfi, komi fram af heiðarleika og trúmennsku og virði stjórn þess sem fer fyrir í hverju verki.

Ávinningur fyrir nemendur

Þótt nemandi hafi lokið námi í ABC skólanum er það ekki ávísun á starf hjá ABC barnahjálp. ABC barnahjálp mun vissulega líta til þess hóps sem hefur setið skólann þegar nýr starfsmaður er valinn, sérstaklega hvað varðar starfsmenn og sjálfboðaliða á erlendri grundu. Getur þátttaka og árangur úr skólanum verið leiðbeinandi um val á fólki til að fara til starfa á vegum ABC. Einnig má ætla að námið geti greitt götuna fyrir nemendur á öðrum vettvangi. Útskrifuðum nemendum verður boðið að gerast meðlimir í Félagi ABC liða sem vinnur að ýmsum verkefnum til styrktar ABC barnahjálp.

ABC International school banner

Hugsjón ABC barnahjálpar er að:
  • Öll götubörn eignist heimili
  • Fátæk börn eigi kost á að ganga í skóla
  • Sjúk börn hafi aðgang að læknishjálp
Lesa meira...
Contact ABC Children's Aid International Senda fyrirspurn
ABC skólinn er hluti af starfi ABC barnahjálpar á Íslandi.

Póstlisti - skráðu netfang:

Vantar þig húsbúnað, bækur, föt, leikföng, prentara, skápa, rúm eða nánast hvað sem er? Kíktu í heimsókn á Nytjamarkaðinn :-)

abc_int

ABC skólinn er hluti af starfi ABC um allan heim.

Áhugavert á vefnum okkar: Frásögn frá KenýaABC skólinn á RÚVHugleiðing á Jólanótt 2011Ævintýralegt myndband frá Kenýa

Che risultato si ottiene quindi quando si assume C i a l i s. | cipro online sale | Cialis